Flugukast – námskeið
Við höfum áratuga reynslu af kastkennslu bæði fyrir byrjendur og lengra komna þar sem við leggjum áherslu á að mæta hverjum og einum eftir getustigi.
Einhendunámskeið
Við bjóðum uppá byrjendakennslu þar sem farið er yfir grunnatriði í fluguköstum.
Á framhaldsnámskeiði lærir þú tæknileg köst og betri línustjórnun í framkastinu fyrir nákvæmari köst
Byrjendanámskeið
Farið er yfir grunnatriði í fluguköstum. Val og uppsetning á búnaði.
Framhaldsnámskeið
– tæknileg köst
- Double haul
- Single hand spey
- Snakeroll
- Mendun í loftinu
- Nákvæm línustjórnun
Mælt er með því að nemendur komi með sínar græjur á námskeiðin.

Rétt líkamsstaða
Grundvöllur fyrir árangursrík og kraftmikil tvíhenduköst án óþarfa álags.
Ráðgjöf
Við yfirförum búnað nemenda og tryggjum rétta uppsetningu
Tvíhendunámskeið
Lögð er áhersla á tækni og rétta líkamsstöðu fyrir hámarks árangur
Underhand & Spey
Farið verður ítarlega í Spey köst og underhanded Spey köst.
Sérhæfð köst
Nemendur læra Snake roll, Snap T og Perry poke. Við kennum þér hvenær skal beita þessum köstum.
Einkakennsla & hópar
Boðið er upp á sérsniðna dagskrá fyrir vina-, veiði- og fyrirtækjahópa. Við sníðum kennsluna að þörfum ykkar og finnum tíma sem hentar.
