Laxveiði – námskeið
Undanfarin misseri hefur áhugi landsmanna á laxveiði aukist til muna. Til að mynda hafa margir vinkvennahópar tekið sig saman og stofnað veiðiklúbba, auk þess sem margir ungir laxveiðimenn hafa bæst í hóp áhugasamra.

Grunnnámskeið í laxveiði
Grunnnámskeiðið okkar býr nemendur undir að geta veitt sjálfstætt svo þau geti notið veiðitúrsins.
- Samsetning á búnaði
- Val á taumum
- Fluguval
- Lestur veiðikorta
- Hvernig nálgast á veiðistað
- Löndun og háfun
- Sleppingu / frágang á afla
Framhaldsnámskeið í laxveiði
Á framhaldsnámskeiðinu öðlast nemendur dýpri skilning á laxveiði. Farið verður yfir ýmsar aðferðir sem auka skilning og færni veiðimanns.
- Saga lax- og fluguveiði
- Lestur á vatni
- Hugmyndafræði tauma og hnúta
- Straumar og rek á flugu
- Strip – afbrigði & tækni
- Hitch & Portlandsbragð
- Micro kónar og túpur
- Smáflugur
