Um veiðiskólann

Veiðiskólinn bíður upp á kastkennslu (bæði á ein- og tvíhendur), fyrirlestra um veiði sem og fluguhnýtinganámskeið fyrir byrjendur og lengra komna.

Allir kennarar hjá Veiðiskólanum eru með áratugareynslu af leiðsögn við íslenskar laxveiðiár, kastkennslu og hnýtingum.


Leiðbeinendur

Bjarki Már Jóhannsson

Bjarki Már Jóhannsson er reynslumikill leiðsögumaður með yfir 20 ára starf að baki við margar af þekktustu laxveiðiám landsins. Hann er líffræðingur að mennt og sameinar fræðilega þekkingu og víðtæka reynslu á einstakan hátt í kennslu sinni.

Bjarki mun kenna bæði fluguhnýtingar og fluguköst. Hann hefur sérhæft sig í klassískum flugum, en kennir bæði byrjendum og lengra komnum hnýturum. Hvort sem þú ert að taka þín fyrstu skref í hnýtingum eða vilt fínpússa tækni þá getur Bjarki aðstoðað þig.


Reynir Friðriksson

Reynir hefur starfað sem leiðsögumaður í tæp 30 ár og er jafnvígur bæði í lax og silungsveiði og hefur hann meðal annars leiðsagt í mörgum helstu lax og silungssvæðum hér á landi ásamt því að fara með hópa til Grænlands.

Reynir er sjávarútvegsfræðingur að mennt og hefur síðustu ár verið einn af aðal kennurum við nám Ferðamálaskólans í veiðileiðsögn. Undanfarin 20 ár hefur Reynir kennt köst bæði á einhendu og tvíhendu jafnt fyrir byrjendur og lengra komna.


Jóhannes Hinriksson

Jóhannes hefur starfað við stangveiði meira og minna í tæpa þrjá áratugi. Öll árin sem leiðsögumaður á sumrin, aðalega við laxveiðar en einnig silungsveiðar.

Jóhannes hefur einnig tekið þátt í að leigja og reka lax og silungsveiði ár um langt skeið.

Hann hefur skipulagt veiðiferðir fyrir einstaklinga/hópa bæði á Íslandi og erlendis t.d. til Noregs, Skotlands, Írlands og Jólaeyja.

Í mörg ár hefur hann þjálfað leiðsögumenn og kennt veiðimönnum fluguveiðar ásamt öllu sem því tengist.